12.2.2010 | 23:46
Rétt skal vera rétt og réttlætið sigrar að lokum
Frjálslyndir fá árlegan styrk
Frjálslyndi flokkurinn gagnrýndi það harðlega þegar Reykjavíkurborg ákvað að veita Borgarmálafélagi F-listans árlegt rúmlega þriggja milljóna króna fjárframlag sitt í hitteðfyrra.
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi stofnaði Borgarmálafélagið vorið 2008, og það ár greiddi borgin styrkinn á reikning þess félags. Ólafur hafði þá sagt sig úr Frjálslynda flokknum. Fyrrum félagar hans sökuðu hann um að draga sér fé frá flokknum.
Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hreinsaði Ólaf af þessum ásökunum en taldi engu að síður mikla óvissu ríkja um það hverjum bæri að greiða framlagið í fyrra og lagði til að það yrði lagt inn á biðreikning og bankinn myndi svo skera úr um hver mætti taka peningana út af reikningnum.
Sjá má þessa frétt á Ruv.is
Borgarlögmaður lagðist gegn þessari leið en óskaði eftir áliti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í málinu.
Nú liggur álitið fyrir og þar segir að Frjálslyndi flokkurinn eigi rétt á framlaginu. Þá segir að ráðuneytið efist ekki um að Borgarmálafélag F-lista sé lögmætt stjórnmálaafl en það hafi ekki boðið fram í síðustu kosningum og lögum samkvæmt sé það skilyrði fyrir fjárstyrk frá sveitarfélagi.
Einnig sé ljóst að fjárframlagið sé ætlað stjórnmálasamtökum en ekki kjörnum einstaklingi.
Þótt álit ráðuneytisins sé ekki bindandi hefur Reykjavíkurborg ákveðið að fara eftir því.
frettir@ruv.is
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.1.2010 | 12:39
Heiðarleiki Ólafs F ?????????????
Hvernig væri að einhver sem veit allt um aðferð Ólafs við að stjórna og reka alla í þessum sjálfseignar flokki hans sem hann hnýtir við Frjálslynda flokkinn með bókstafnum F. myndi koma fram á sjónarsviðið og skýra frá sannleikanum?
En hann er eitthvað á þessa leið en ég bið afsökunar á því ef ekki er farið með rétt.
1. Hann hafði ekki leyfi til að nota bókstafinn F..
2. Hann boðaði til stjórnarfundar ólöglega og rak alla úr stjórninni sem voru ekki að hans sögn traustisins verðir án þess að þeir væru boðaðir.
3. Hann hafði ekki fyrir því að skýra þeim frá þessari úrsögn.
4. Hann hefur ekki heimild til að ráðstafa þeim fjármunum sem Frjálslyndi flokkurinn fékk frá Reykjavíkurborg inn á sinn reikning.
5. Þá fjármuni er hann nú að nýta í auglýsinga og óhróðurs herferð gegn Hönnu Birnu.
|
Ólafur víttur á borgarstjórnarfundi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.5.2009 | 00:43
Sjaldan launar kálfur ofeldið
Vil aðeins geta þess að allir sem mættu á miðstjórnarfundinn voru svo til sammála um það að flokknum væri betur borgið með áframhaldandi stjórn og miðstjórn. Margt má eflaust betrumbæta en ekki teljum við farsælt að skipta um hest í miðri á ef má nota þá samlíkingu. Því uppgjöf heyrðist ekki frá neinum get ég fullyrt. Og flestir sem tóku til máls lýstu furðu sinni yfir því að aðilar sem komu ekki nálægt neinni vinnu í tengslum við þessar kosningar og gera ekki neitt nema rakka niður flokkinn skuli telja sig geta leiðbeint með framhaldið.
Ef hinir aðilar sömu sjá ekki sóma sinn í því að halda sér frá lyklaborðinu og fjölmiðlum ef þeir hafa einungis það fram að færa sem þeim í raun kemur ekki við ættu þeir að líta í eiginn barm.
Og spyrja sig sjálfa?
- Hvað gerði ég til að auka fylgið?
- Hvað gerði ég til að halda góðum anda í flokknum?
- Hversu mikið lagði ég á mig í þágu flokksins og fyrir minn vinnuveitanda?
Og eflaust er margt fleira sem mætti telja upp.
En eitt er ég með á hreinu að ég og allir þeir sem komu að kosningbaráttunni í Norðausturkjördæmi hafa hreina samvisku og teljum við okkur hafa reynt okkar besta til að auka fylgi og koma okkar manni á þing. Og við erum öll sammála um það að halda okkar baráttu áfram og styðja okkar góða formann Guðjón Arnar og halda áfram að reyna að efla Frjálslynda flokkinn.
|
Boða ekki til landsþings |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vinir og fjölskylda | Breytt 20.1.2010 kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.5.2009 | 00:19
Sjaldan launar kálfur ofeldið
Vil aðeins geta þess að allir sem mættu á miðstjórnarfundinn voru svo til sammála um það að flokknum væri betur borgið með áframhaldandi stjórn og miðstjórn. Margt má eflaust betrumbæta en ekki teljum við farsælt að skipta um hest í miðri á ef má nota þá samlíkingu. Því uppgjöf heyrðist ekki frá neinum get ég fullyrt. Og flestir sem tóku til máls lýstu furðu sinni yfir því að aðilar sem komu ekki nálægt neinni vinnu í tengslum við þessar kosningar og gera ekki neitt nema rakka niður flokkinn skuli telja sig geta leiðbeint með framhaldið.
Ef hinir aðilar sömu sjá ekki sóma sinn í því að halda sér frá lyklaborðinu og fjölmiðlum ef þeir hafa einungis það fram að færa sem þeim í raun kemur ekki við ættu þeir að líta í eiginn barm.
Og spyrja sig sjálfa?
- Hvað gerði ég til að auka fylgið?
- Hvað gerði ég til að halda góðum anda í flokknum?
- Hversu mikið lagði ég á mig í þágu flokksins og fyrir minn vinnuveitanda?
Og eflaust er margt fleira sem mætti telja upp.
En eitt er ég með á hreinu að ég og allir þeir sem komu að kosningbaráttunni í Norðausturkjördæmi hafa hreina samvisku og teljum við okkur hafa reynt okkar besta til að auka fylgi og koma okkar manni á þing. Og við erum öll sammála um það að halda okkar baráttu áfram og styðja okkar góða formann Guðjón Arnar og halda áfram að reyna að efla Frjálslynda flokkinn.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2009 | 21:47
Sómamaður sem stendur sína vakt
Það er alveg sama hver er niðurstaða kosninga þá munu flokksmenn í Frjálslynda flokknum standa sína vakt og ekki síðst með Guðjón Arnar sem skipstjóra.
Menn þurfa ekki að álykta um eitthvað sem þeir vita ekki neitt um.
Þeir sem eru í flokknum í Norðausturkjördæmi hafa fundað í dag og eru sammála um að ekkert komi annað til greina en styðja Guðjón Arnar heilshugar og munu gera það með stolti og sóma.
Traustur vinur
hvort vini áttu þá.
Fyrirheit gleymast þá furðu fljótt
þegar fellur á niðdimm nótt.
Já, sagt er að, þegar af könnunni ölið er,
fljótt þá vinurinn fer.
Því segi ég það, ef þú átt vin í raun,
fyrir þína hönd, guði sé laun.
|
Miðstjórn Frjálslynda flokksins kölluð saman |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
19.4.2009 | 00:10
Kjósið Frjálslynda flokkinn, Guðjón Arnar og félaga
Eins og allir vita sem þekkja Guðjón Arnar er hann traustur og góður maður. Það má segja með sanni að hann sé þyngdar sinnar virði í gulli eða manngæsku og þekkingu á sjávarútvegsmálum. Það er hægt að treysta því að hann er maður sem veit hvað hann er að segja um það sem varðar kvótakerfið og fleira sem flokkurinn hefur á stefnuskrá varðandi fiskveiði. Flokkurinn hefur að leiðarljósi heiðarleika og að láta gott af sér leiða en til þess að geta framkvæmt þessa hluti þarf hann að fá tækifæri. Fjölmiðlar birta einungis fréttir um Frjálslynda flokkinn ef það er eitthvað neikvætt en ef eitthvað jákvætt gerist þykir það ekki fréttnæmt.
Hvers á flokkurinn gjalda?
|
Frjálslyndir með 9,3% í NV |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
17.4.2009 | 22:39
Ásta Hafberg til hamingju.
8.4.2009 | 23:18
Kosningarsjónvarp fyrir Norðausturkjördæmi
Ásta Hafberg til hamingju.
Fimmtudagskvöldið s.l. sátu fyrir svörum fulltrúar flokkanna frá Norðusturkjördæmi
Ásta Hafberg, sem skipar fyrsta sæti á okkar lista í Norðausturkjördæmi stóð sig þvílík vel að ef málflutningur hennar þar sem hún lýsti stefnumálum okkar Frjálslyndra hristir ekki upp í kjósendum þá verð ég mjög hissa.
Hún stóð sig frábærlega í heimi karlanna og var mikli málefnalegri en þeir. En hvernig stendur á því að mér finnst eins og hin framboðin séu búin að taka upp stefnuskrá Frjálslynda Flokksins og allir séu með það sama á stefnuskrá.
- Afnemum verðtryggingu, setjum skuldir heimila á biðreikning og aukum sjálfsbjargarviðleitnina hjá fólki t.d. með því að gera því kleift að stofna fyrirtæki.
- Efla þarf ferðamennsku og er tilvalið að slá saman smábátaveiðum og ferðamennsku því að mikil eftirspurn er eftir sjóstangaveiðum hjá erlendum ferðamönnum.
Ekki eru samt skoðunarkannanir okkur Frjálslyndum í hag ennþá, en málflutningur okkar fulltrúa var í gærkvöldi okkur öllum til sóma. Ef fólk vill í raun breytingar þá hlýtur það að hlusta eftir úrbótum, raunhæfum lausnum en ekki fagurgala fjórflokkanna.
Til hamingju Ásta X-F
16.4.2009 | 23:26
Líf í þágu tillitsemi og mannúðar
Þeir sem hafa alist upp við það að umgangast dýr skilja í hvaða stöðu fólkið á Sléttu er. Það er ekki eingungis um að ræða hvaða skilningur er lagður í því að hvort þetta sé vilt dýr eða heimilsdýr. Reglugerðir er hægt að aðlaga aðstæðum hverju sinni og það ætti að vera hægt í þessu tilfelli.
Getur sá sem tekur ákvörðun eða setur reglurnar í þessu einstaka tilfelli ekki sett sig í spor barnanna sem hafa gefið þessum hreindýrskálfi og klappað honum og gert undanþágu. Þetta er einstakt tilfelli sem á örugglega ekki eftir að endurtaka sig allaveganna ekki oft.Þetta er ekki lengur vilt hreindýr heldur gæludýr á heimili og það á að meðhöndla það sem slíkt.
Ekki blanda pólitík í þetta, það er óþarfi að gera ljóta hugsun úr þessu máli með Líf hreindýrskálf.
Það var heppni að umhverfisráðherra gat gefið sér tíma til að athuga málið sjálf og kannað aðstæður í eigin persónu en ekki bara senda bréf og skipa öðrum að framkvæma verkið. Hún var jú stödd fyrir austan til að taka fyrstu skóflustunguna að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri
Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tók fyrstu skóflustunguna að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri í dag og undirritaði við það tækifæri reglugerð um stækkun þjóðgarðsins til norðurs. Verður þá Trölladyngja í heild, Askja og stór hluti Ódáðahrauns hluti af þjóðgarðinum.
Í Gestastofunni á Skriðuklaustri verður sett upp kynning á þjóðgarðinum og þar verður hægt að nálgast allar upplýsingar um þjóðgarðinn og nágrenni hans, gönguleiðir, náttúrufar, sögu, þjónustu og afþreyingu. Ljúka á byggingu gestastofunnar fyrir 15. maí 2010. Gestastofur verða meginstarfsstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs og þaðan verður landvörslu og daglegum rekstri hvers rekstrarsvæðis þjóðgarðsins stjórnað. Gestastofan á Skriðuklaustri verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum.
Í ferðinni þáði umhverfisráðherra einnig heimboð Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Sambandið sendi umhverfisráðherra heimboð í febrúar síðastliðnum og óskaði eftir að fá að kynna fyrir henni þau áhrif sem stóriðja hefur haft á landsfjórðunginn. Umhverfisráðherra snæddi hádegisverð í Ráðhúsinu Reyðarfirði með Helgu Jónsdóttur bæjarstýru, Guðmundi R. Gíslasyni, forseta bæjarstjórnar og Smára Geirssyni, formanni Fjarðabyggðarhafna. Umhverfisráðherra fór síðan í skoðunarferð um Reyðarfjörð og nærsvæði og heimsótti m.a. ábúendur á Sléttu sem hafa alið hreindýrskálf frá því í fyrravor. Þá spjallaði umhverfisráðherra við þau Jónínu Rós Guðmundsdóttur, formann bæjarráðs Fljótsdalshéraðs og Óðinn G. Óðinsson, verkefnis og þróunarstjóra, yfir kaffibolla á Hótel Héraði. Að því loknu hélt umhverfisráðherra að Skriðuklaustri þar sem hún tók skóflustungu að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs og undirritaði reglugerð um stækkun þjóðgarðsins.
|
Mun tryggja að Líf fái líf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
6.4.2009 | 11:07
Til eru fræ
| Til eru fræ, sem fengu þennan dóm: Að falla í jörð, en verða aldrei blóm. Eins eru skip, sem aldrei landi ná, og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá, og von sem hefur vængi sína misst, og varir, sem að aldrei geta kysst, og elskendur, sem aldrei geta mæst og aldrei geta sumir draumar ræst. Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn, og lítil börn, sem aldrei verða menn. |
5.4.2009 | 13:17
Illgresi í garðinum
Ekki er það mín meining að líka Guðrúnu Maríu við illgresi en það sem ég átti við að það hefur verið ósætti og það er ekki gott. Vonandi finna þeir sem voru ósáttir frið á öðrum vettvangi þeim sjálfum og öðrum til góðs.
Þegar ég var í sveitinni í gamla daga var það siður að ef að það fannst illgresi á einum stað í garðinum var reynt að uppræta það á öllu svæðinu svo að það smitaði ekki út frá sér. Það sama má segja um í þessu tilfelli. því vonandi er nú lokið því ósætti sem verið hefur í Frjálslynda flokknum. Nú er garðurinn hreinn og hægt er að byrja ræktun upp á nýtt.
|
Segir skilið við Frjálslynda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vinir og fjölskylda | Breytt 9.4.2009 kl. 08:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Um bloggið
olafia-herborg
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 7864
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



thjodarsalin
eirikurgudmundsson
gretarmar
hallgrimurg
hbj
jensgud
kolbrunerin
rheidur
siggith
sigurjonth






