Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Fráfarandi ráðherrar afsali sér biðlaunum

Allflestir íslenskir launþegar hafa einugis þriggja mánaða uppsagnarfrest hjá vinnuveitendum sínum.  Þeir heppnu eiga rétt á einhverjum biðlaunum en ekki allir. Þetta á því við um þorra 12.800 manna og kvenna sem nú eru orðin atvinnulaus og einnig þá sem næstu mánuði muni missa atvinnu sína. Þess vegna er mikið órétti í því að sumir með hátt á aðra milljón í mánaðarlaun fái að halda þeim í mismunandi marga mánuði og sumir jafnvel mörg ár.

Fráfarandi ráðherrar ættu að sjá sóma sinn í því að afsala sér öllum sínum biðlaunum og vera með því fyrimynd annara velstæddra aðila. Eða þeir gætu óskað eftir því að þessari upphæð yrði ráðstafað til einhverja hjálparstofnunar. Þar finnst mér að Davíð Oddson ætti að ríða á vaðið og stíga fram fyrir fjölmiðla og lýsa þessu yfir. Þetta gæti virkað eins oft hefur tíðkast í hinum fjölmörgu söfnunum sem hafa skilað heilmiklum upphæðum. Sá sem kemur fram með slíka tillögu myndi skora á eihvern annann, t.d. Davíð á Geir og Geir á Þorgerði Katrín og Þorgerður gæti skorað á Jónas í Fjármálaeftirlituny og sv.framv.
Nú er bara að vera fyrstur til að sína sóma sinn og með því láta þjóðina bera meiri virðingu fyrir sér og taka á sig hluta af ábyrgðinni.

Fyrstur kemur fyrstur fær og á það við í þessu tilfelli heiðurinn á því að axla ábyrgð.


mbl.is Ráðherrar afsali sér biðlaunarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biðlaun Jónasar og fl.

Jónas Fr. Jónsson, fráfarandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), ætti að skammast sín fyrir að þiggja þessi biðlaun. Hvað með verkmenn og aðra launþega sem ekki eru eins heppnir. Þessum launun ætti að skipta niður á þá sem ekki eru eins heppnir að hafa fengið feitan bita frá einhverjum velviljuðum. Davíð Oddson ætti líka að skammast sín og afsala sér sínum bið og eftirlaunum.

Vildi gjarnan fá útskýringu á hvort hann á að fara á margföld eftir/biðlaun, t.d. sem fyrrverandi borgarstjóri, fyrrverandi forsætisráðherra og svo í viðbót sem seðlabankastjóri.

Hvað kostar þetta þjóðina?

Hversu mörg verkamannalaun gerir þetta í heildina?


mbl.is Stjórnin semur um kjör forstjóranna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyfi til hvalveiða afturkallað

Eitt af því sem mér finnst ekki rétt er það að ráðherrar séu að drita út einhverjum samþykktum í skjóli síðustu daga í embætti. Hefði viljað setja í lög frá Alþingi að óheimillt væri að gera slíkt.

Það er alkunnugt að ráðherrar virðist vera í ham og fá þessa óstjórnlegu þörf til að gera eitthvað slíkt áður en þeir hætta í ráðherrastóli

Það er eins og þeir vilji klára einhverja pakka til málefna sem þeim eru hugleikin og telja örugglega sig vera að gera góða hluti. En svo þarf sá sem situr í embættinu á eftir þeim að vinna í pakkanum.

Ég hefði viljað fá svör við eftirfarandi:

  1. Hversu miklar tekjur gefa þessar hvalveiðar þjóðarbúinu?
  2. Hversu margir fá vinnu við þessarveiðar?
  3. Hvernig eru áhrifin útaf við t.d. með tilliti til ferðaþjónustunnar ?
  4. Hætta e.t.v einhverjir ferðamenn við að koma til landsins út af þessu?
  5. Er farsælla að leggja meiri áherslu á að sýna hvalina lifandi?

mbl.is Hvalurinn setur hnút í Frjálsynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samtaka Austfirðingar

InLove  Þessi áskorun var send um allt Austurland og vonandi hefur þetta haft áhrif. InLove

Ágætu Austfirðingar!
Stjórnir Markaðsstofu Austurlands og Menningarráðs Austurlands hafa sent svohljóðandi áskorun á forsvarsmenn RUV og þingmenn okkar kjördæmis í sniglapósti og tölvupósti, sem og á fjölmiðla. Við hvetjum núna alla Austfirðinga í ferðaþjónustu- og menningarbransa um að klippa áskorunina inn í eigin tölvupóst og senda á útvarpsstjóra og aðra stjórnendur RUV.

Gott að bæta einhverju við frá eigin brjósti en aðalatriðið er að við sýnum samstöðu og látum í okkur heyra.

Þið getið tekið netföngin upp hér að neðan.

pall.magnusson@ruv;isbjarnig@ruv.is; bjarnik@ruv.is; sigruns@ruv.isthorhallur.gunnarsson@ruv.is; odinnj@ruv.is;ruvak@ruv.is


mbl.is Svæðissendingar halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreditkortaferðamenn til Íslands

Mikið væri nú gott ef þessi fyrirtæki myndu muna eftir því að Íslandi tilheyrir líka landsbyggðin.

Margt er að sjá t.d. á Austurlandi sem hin almenni kreditkortahafi hefur aldrei heyrt um og fær ekki upplýsingar um. Hægt er að sjá ýmislegt fróðlegt og spennandi inn á www.east.is


Sigurjón Þórðarson, er athafnasamasti þingmaður sem kosinn hefur verið á Alþingi Íslendinga

Þeir kjósendur í Norðusturkjördæmi sem eru að ganga inn í kjörklefana í dag ætti að hugsa sig vel um. Hver er líklegastur til að framkvæma það sem hann eða hún hefur lofað?

Að mínu mati eftir kynni af þeim frambjóðendum sem eru í kjöri er það ekki spurning.

Sigurjón Þórðarson er sá athafnasamasti einstaklingur sem ég hef kynnst og mun ég hafa hann mjög ofarlega í huga þegar ég geng inn í kjörklefann í dag. En hvað með ykkur hin?


mbl.is Búið að opna kjörstaði um allt land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft er þörf en nú er nauðsyn

Í Málefnahandbók Frjálslynda flokksins sem má sjá á www.xf.is segir eftirfarandi:
Samgöngur:
Frjálslyndi flokkurinn vill að í samgöngumálum verði sérstaklega horft til þess að bæta umferðaröryggi á þjóðvegum landsins. Einbreiðar brýr verði aflagðar og markvisst fækkað öðrum slysagildrum og mjóum vegum.
Meginmarkmið með nýjum vegum verði að stytta vegalengdir milli þéttbýlisstaða og landsvæða með varanlegum framtíðar lausnum svo sem jarðgöngum, þverun fjarða og þar með fullgerði Sundabraut.
Sjó-, og land og loftflutningum verði gert jafnhátt undir höfði í skattalegu tilliti.
Hertar verði reglur um flutninga á eldfimum og mengandi efnum.
Frjálslyndi flokkurinn leggur árherslu á mikilvægi Reykjavíkurflugvallar sem innanlands-og sjúkraflugvallar auk þess að vera mikilvægur varaflugvöllur fyrir millilandaflug ásamt Egilsstaðaflugvelli.
Einnig ber að efla Keflavíkurflugvöll sem millilandaflugvöll til framtíðar.

Er hægt að bjarga þessu störfum með pólitískum aðgerðum?

Gera Reykvíkingar sér grein fyrir því hvað þessir 48 af 60 starfsmönnum Bakkavíkur myndu vera mikil prósentuhlutföll hjá t.d. einhverju stórfyrirtæki á Reykjavíkursvæðinu.

Og hversu stórt hlutföll þessir starfsmenn eru af heildaríbúum staðarins og miðað við þá útreikninga hvað væru þetta þá margir íbúar á Stórreykjavíkursvæðinu.

 


mbl.is Áhyggjur af ástandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opinber gögn.

Hver er ábyrgð alsherjarnefndar á því að gögn skulu varðveitast eða vera aðgengileg fyrir þá sem málið varðar.

Getur Bjarni svarað fyrir það?


mbl.is Bjarni segist ekki hafa neitað Sigurjóni um gögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið ávísunahefti

Félagsmálaráðherrra er á ferðinni með galopið veskið og það dreifist úr því eftir hentugleika.

Skyldi þetta vera tengt kosningum?

Hvað ætlar hann að gera fyrir eldri borgara?

Hvað ætlar hann að gera fyrir þá sem fá ekki vinnu, t.d. konurnar sem misstu vinnuna þegar 118 var fært á suðurnesin?


mbl.is Búsetuúrræðum fyrir fatlaða fjölgað á Austurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

olafia-herborg

Höfundur

Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
Kona á besta aldri með sjálfstæðar skoðanir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Guðjón Arnar
  • FlyerA5nordaustur
  • Ásta Hafberg 14
  • 2.Eiríkur Guðmundsson
  • 1.sæti Ásta Hafberg

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 9777

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband