Við gefumst ekki upp þá að móti blási eins og sannir sjómenn.

Ég er ekki reynd í neinu flokka starfi en tók í fyrsta sinn þátt í Landsþingi Frjálslyndra á Stykkishólmi f.rúmri viku ásamt fl. sem komu að austan. Þar var Ásgerður Jóna kjörin varaformaður flokksins með einhverjum meirihluta sem var að mínu áliti mest tilkominn af því að stuttu fyrir kjörið komu inn á þingið hópur vina hennar sem annars sátu ekki þingið. Þeim virðist hafa verið leiðbeint um hvað þeir ættu að kjósa t.d. í miðstjórn því að einn sem sat við sama borð var vitni að því að Á.J.F. lét ganga lista sem hún var búin að fylla út og hennar lið átti svo að hafa að leiðarljósi. Flestir þeir sem við Austfirðingarnir spjölluðu við mæltu með Kolbrúnu Stefánsdóttur sem varaformanni en hún fékk ekki nógu mörg atkvæði  e.t.v vegna óheiðarlegra vinnubragðra Á.J.F.

Ég er eins og ég sagði í byrjun ekki með reynslu í pólitík og veit því ekki hvort svona vinnubrögð er algeng en mér líkar þau ekki. Hef aldrei kunnað að meta það að fólk komi sér áfram á kostnað annara, vil frekar að það sé gert samkvæmt eginn verðleikum. Af hverju Á.J.F. taldi sig þurfa að tryggja fjölda atkvæða með smölun verður hún ein að tjá sig um, ef hún hefur unnið með hag flokksins að leiðarljósi þann tíma sem hún hefur verið í flokknum átti hún ekki að þurfa að beita neinni smölun. Kolbrún Stefánsdóttir þurfti þess ekki, hún virðist vera með hreina samvisku og styð ég hana því til að taka við sem varaformaður. Hún hefur framkomu sem er til fyrirmyndar og hann ég vel að meta svoleiðis framkomu.

Vonandi er nú lokið hreinsun úr flokknum og hann getur hafið starf samkvæmt sinni stefnuskrá sem er til fyrirmyndar. En annað er það sem ég er hissa á og það er hversu fjölmiðlar eru fljótir til að birta neikvæðar fréttir í garðs flokksins en birta síður jákvæðar fréttir. Vil ég t.d. benda á að í framboði fyrir norðausturkjördæmi er úrvals lið með Ástu Hafberg, unga kjarnakonu í 1. sæti. Með hana fremmsta í flokki er flokkurinn með konu sem þekkir til allra þeirra hluta sem nauðsynlegt er fyrir hinn almenna kjósanda. Þegar hún verður komin inn á þing mun hún vinna heiðarlega með hagsmuni kjósanda að leiðarljósi en ekki með þá


mbl.is Guðjón A. undrandi á uppsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hefur þú einhverja hugmynd um hvað þú ert að tala ?

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.3.2009 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

olafia-herborg

Höfundur

Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
Kona á besta aldri með sjálfstæðar skoðanir
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Guðjón Arnar
  • FlyerA5nordaustur
  • Ásta Hafberg 14
  • 2.Eiríkur Guðmundsson
  • 1.sæti Ásta Hafberg

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband